Flugsíðan

Hlutur í Geirfugli til sölu



  24.12.2006

 

Gleðileg jól

          Flugsíðan óskar lesendum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og þakkar samstarfið á liðnum arum með von um góða samveru á komandi árum.


22.08.2004

Hotbird.

Flugmálafélag Íslands og Fyrsta flugs félagið, í samvinnu við Iceland
Express, hafa skipulagt hópferð til London dagana 4.-6. september nk. 

Kjörorð ferðarinnar er: “Loftleiðastemming í London” og hún helguð 60 ára afmæli Loftleiða sem er í ár.

            “Við viljum minnast Loftleiða, eins flottasta og framsæknasta fyrirtækis Íslandssögunnar, fyrirtækis sem var sannkallaður þjóðasómi og kom okkur Íslendingum í eitt skipti fyrir öll á alheimskort flugsins”, segir Gunnar Þorsteinsson formaður Fyrsta flugs félagsins og fararstjóri í ferðinni.

MEIRA

Hotbird Myndir


 

27.07.2004

Flugsumarið.

    Eins og allir vita sem fylgst hafa með fluginu í ár þá hefur flugsumarið hafist fyrir þó nokkrum vikum. Ímsir flugatburðir hafa átt sér stað, má þar meðal annars nefna hópflug á blöndós en myndir af því hópflugi má sjá á myndasíðu Geirfugls, Geirfuglin hélt upp á 7 ára afmæli sitt, Flugskóli Íslands keypti annan seminol sem ætti að komast í gagnið fljótlega og margt fleira hefur gerst í flugheiminum í sumar.

    En margt á eftir að gerast eins og helgina 17-18 júlí munu Geirfuglar halda sína árlegu Hellu hátíð og eru allir flug og áhugamenn/konur boðnir velkomnir fljúgandi sem og bílandi ekkert kostar inn á svæðið
    Flugmálafélagið mun svo standa fyrir Múlakots hátíðinni um verslunarmanna helgina þar verður eflaust mikið flogið ef veður leyfir.


24.12.2003

Gleðileg Jól.

    Flugsíðan óskar lesendum sínum sem og landsmönnum öllum Gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Og þakkar fyrir góðar viðtökur á liðnum árum. Með von um frábært flugár 2004.


13.11.2003

Flugöryggisfundasyrpa.

Hefst 20 árið í röð.

    Ný flugöryggisfundasyrpa hefst fimmtudagskvöldið 20. nóvember 2003 20. árið í röð. Fundurinn fer fram á Hótel Loftleiðum og hefst klukkan 20:00. Dagskrá verður hefðbundinn, farið yfir flugatvik og óhöpp síðustu 12 mánuði, Pétur K. Maack mun fjalla um EASA (European Aviation Safety Agency), Þórarinn Kjartansson forstjóri Flugfélagsins Bláfugls segir frá starfsemi og framtíðarsýn félagsins og ef tími leyfir verður sýnt athyglisvert myndband.

Meira


05.11.2003

Haustfagnaður FÍE.

    Félag íslenskra einkaflugmanna mun standa fyrir haustfagnaði föstudaginn 7. nóvember. Haustfagnaðurinn mun fara fram í félagsheimili FÍE við fluggarða, húsið opnar kl: 20:00 og verður opið fram eftir nóttu. meðal efnis á haustfagnaði verður verðlaunaafhending fyrir flugrallý ársins, myndasýningar og fleira. seldar verða vægar veitingar á vægu verði.


03.09.2003

Silfur-Jódel Seinni hluti.

    Seinni hluti Silfur-Jódels lendingarkeppninnar fer fram  laugardaginn 6.sept næstkomandi kl:13:00 á Tungubakkaflugvelli í Mosfellsbæ. Þessi árlega lendingarkeppni fer þannig fram að tvisvar á ári er keppt og vinnur sá sem á besta skorið úr annari hvorri keppninni, þannig að ekki er þörf fyrir menn að keppa í bæði skiptin til að eigja von á sigri.

    Ef ekki verður nægjanlega gott veður á laugardaginn mun keppnin verða færð á sunnudag. keppnin hefst klukkan 1300 og er þáttökugjald aðeins litlar 1000 krónur.

    Silfur-Jódelinn fór fyrst fram árið 1990 og hefur verið keppt á þessu móti á hverju ári síðan. Þrátt fyrir að þessi keppni heiti Silfur-Jódel og nafnið sé tengt við Jódel flugvélar, sem byggðar eru úr timbri og klæddar með súkk og frekar skrítnum upp sveigðum vængjum og flestar þeirra á stélhjóli, þá er öllum heimil þáttaka á hvernig flugvél sem er.

    Stigaröð eftir  fyrri umferð:

    1.    Snorri B. Jónsson                TF-ULV               34 stig
     2.    Jón Karl Snorrason              TF-ULF                39 stig
     3.    Maggnús Víkingur                TF-REF                48 stig
     4.    Davíð Björn Ólafsson          TF-OXO                75 stig


15.08.2003

Flugdagur í Reykjavík.

    Flugleiðir og Flugfélag Íslands munu standa fyrir flugdegi í Reykjavík þann 16 ágúst í tilefni af 30 ára afmæli Flugleiða, 100 ára afmæli flugs í heiminum og 60 ára afmæli þristsins, DC3 flugvélarinnar sögufrægu.

Dagskrá í stórum dráttum fyrir flughátíðargesti:

15:00 Flughátíð Icelandair og Flugfélags Íslands hefst: Skemmtileg dagskrá við skýli 4 á Reykjavíkurflugvelli til 20:00
15:15 Keppni í Skutlukasti, 60 ferðavinningar og 100 aukavinningar
15:30 Þyrla Landhelgisgæslunnar sýnir flugatriði
16:00 Samflug innanlandsflugvéla frá 1946
16:15 Björgunarfallhlífarstökk
16:30 Svifflug og karamellukast við skýli 4
17:00 Tignarlegt Listflug
17:30 12 manna fallhlífarstökk og marklending
18:00 Eltingarleikur í háloftunum
18:30 Sjö vélar frá Flugskóla Íslands sýna listir sínar
19:00 Landgræðslan dreifir blómum við flugskýli 4
20:00 Dagskrá lýkur

Einnig má geta þess að Flugfélagið Geirfugl verður með 2 flugvélar félagsins til sýnis fyrir hátíðargesti.
 


15.08.2003

Múlakot 2003.

     Flughátíð flugmálafélagsins var haldin í múlakoti um verslunarmanna helgina í stórkostlegu veðri. Sjaldan hafa jafn margir gestir komið á hátíðina og í ár en stanslaus umferð akandi og fljúgandi fólks var á svæðinnu alla helgina.

Myndir frá hátíðinni má sjá hér


24.06.2003

Hella 2003.

    Hella 2003 hin árlega flughátíð Flugfélagsins Geirfugls verður haldin nú um helgina 28-29 júní. Þar mun verða lögð áheyrsla á skemmtun gleði. 'A laugardaginn mun hin víðfræga lendingarkeppni Geirfugls verða og er hún opinn öllum sem vilja taka þátt. Að henni lokinni mun taka við fjölskylduskemmtun fram að kvöldmat og mun þá verða kveikt upp í grilli til afnota fyrir Geirfugla og aðra gesti, og að lokum verður kvöldskemmtun á svæðinu. Og á sunnudeginum verður svo flogið sem veður leyfir.
    Allar vélar Geirfugls verða á svæðinu svo lengi sem þær verða flughæfar, búist er við fleiri vélum á svæðið bæði í stutt stopp og næturlangt.

    Það hefur ýmislegt skemmtilegt gerst á Hellu meðal atburða sem má nefna að hafa komið óvænt upp á á Hellu á undanförnum árum eru t.d. Þyrlur frá norðurvíking hafa látið sjá sig, yfirflug Páls Sveinssonar, "mið"næturflug í mörkinna og margt fleira.

    Geirfugl vil koma því á framfæri að allir eru velkomnir á svæðið Geirfuglar sem og aðrir flugmenn/konur og annað  áhugafólk um flug. Ekki er rukkað fyrir tjaldstæði.


05.05.2003

BIRK og Flokkarnir.

Nú eru að koma kosningar og þá er vert að skoða afstöðu stjórnmálaflokkana til BIRK.

Framsóknarflokkurinn er með skýra afstöðu og vilja að innanlands,sport- og sjúkraflugi sé áfram þjónað frá Reykjavíkurflugvelli og jafnframt því beri að tryggja betri samgöngur milli Reykjavíkurflugvallar og Keflavíkurflugvallar með tvöföldun Reykjanesbrautar og bæta aðgengi að Reykjavíkurflugvelli.

Meira


16.04.2003

Flugklúbbur Íslands.

Í janúar var stofnaður nýr flugklúbbur í anda Geirfugls. Guðmundur Unnsteinsson einn af stofnendum klúbbsins segir að það sé rangt sem haldið hefur verið fram að fyrsta vélin verði keypt þegar selst hafa 30 hlutir, heldur sé ætlunin að kaupa vél og sé ýmislegt þar í skoðun og vonast hann eftir að búið verði að ganga frá  kaupum á vél öðru hvoru meigin við næstu mánaðarmót. Byrjað verði á eini vél og svo verði vélum fjölgað á næstu mánuðum og 3-4 vélin verði tveggja hreyfla og kemur hún að öllum líkundum erlendis frá.
Guðmundur telur að margar sögur séu í gangi um félagið sem ekki eru á rökum reistar og þær verði leiðréttar á næstunni á heimasíðu félagsins.

Flugsíðan óskar Flugklúbbi Íslands til hamingju með stofnun félagsins.


16.04.2003

SE-LMB(TF-WOW) á leiðinni.

Nýja flugvél Flugfélagsins Geirfugls er að leggja af stað frá Svíþjóð. Og mun hún væntanlega vera í Noregi í kvöld og fara yfir hafið á morgun og verða í Reykjarvík seinni partinn á morgun.
Hjá Geirfuglum fæst ekkert upp gefið hvaða stafi nýja vélin muni bera, þar sem ekki hefur verið tekin ákvörðun um það ennþá, en TF-WOW er ein runan sem nefnd hefur verið ásamt fjölmörgum öðrum. WOW stendur fyrir Wilbur og Orwille Wright.


12.04.2003

Geirfugl endurnýjar.

Flugfélagið Geirfugl hefur fest kaup á nýrri flugvél af gerðinni Socata TB10 árgerð 1999 flogin innan við 100 tíma. Vélin er mjög vél búin tækjum og mun Socata TB9 vél Geirfugls TF-BRO verða seld í staðinn. Nýja vélin kemur frá Svíþjóð og er væntanleg til landsins jafnvel fyrir páska. Hér má sjá upplýsingar og myndir af nýju vélinni.
Heyrst hefur að Geirfugl sé að hefja leit af 7undu vélinni í flotann sinn.


12.04.2003

Nýr Flugklúbbur.

Stofnaður hefur verið nýr flugklúbbur í anda Geirfugls og ber hann nafnið Flugklúbbur Íslands. Ætlunin er að vera með 3 vélar 2 einshreyfils og 1 tveggjahreyfla. Og mun fyrsta vélinn verða keypt eftir að um 30 manns munu hafa reitt út 250.000 krónur hver.
Heimasíða Flugklúbbs Íslands.


28.02.2003

Olís hefur sölu AVGAS 100LL.

Olís hóf í dag aftur sölu á AVGAS 100LL eldsneyti eftir um viku stopp. Við nánari rannsóknir á þeim birgðum sem félagið á á Reykjarvíkurflugvelli hefur komið í ljós að þær birgðir standast kröfur.  Og hófst því sala úr tanki Olís í dag en þar geta þó aðeins þeir verslað eldsneyti sem hafa lykil af þeim tanki.

Hjá Shell er ekki hafin afgreiðsla á eldsneyti ennþá en þeir gera sér vonir um jákvæðar niðurstöður úr rannsóknum sem eru í gangi en svör úr þeim eru væntanleg seinni partin í dag, og í framhaldi af þeim niðurstöðum verða frekari ákvarðanir teknar.

En eftir sem áður stendur til að nýjar birgðir af AVGAS 100LL muni berast hingað til lands um miðjan mars mánuð.


 

24.02.2003

Flugskemmtanir.

Næstkomandi laugardagskvöld 1.mars verður margt um að vera í skemmtanalífi flugmanna og áhugafólks. Flugmálafélagið mun standa fyrir skemmtikvöldi í félagsheimili Seltjarnarness og lofa þeir arfa skemmtilegri dagskrá og mun hún verða birt síðar.

Á laugardag 1.mars mun svo Flugfélagið Geirfugl halda sinn árlega aðalfund, en um kvöldið munu svo Geirfuglar koma saman í félagsheimili Karlakórs Reykjarvíkur ÝMI og skemmta sér á hinni árlegu árshátíð, en þar mun margt verða gert sér til gamans og mun hin sívinsæla hljómsveit Geirfuglarnir koma þar fram. Þetta er í annað sin sem Geirfuglarnir koma fram á árshátíð Geirfugla.


23.02.2003

Flugöryggisfundur.

Flugöryggisfundur verður í bíosal Hótel Loftleiða næstkomandi þriðjudag 25.febrúar kl: 20:00.  Þar verður fjölbreytt dagskrá og má þar meðal annars nefna kynningu Ottó Tynes á nýjum flugöryggis námskeiðum Flugmálastjórnar, fyrirlestur Snorra Guðmundsonar flugverkfræðings um Cirrus flugvélar, Örn Johnson og Jón Karl Snorrason fjalla um atvik þegar loftskrúfa brotnnaði í 4000 fet hæð, og er margt fleira á dagskrá
                                                                    Sjá nánari dagskrá


22.02.2003

FMS gefur út nýtt notam.

Flugmálastjórn hefur gefið út nýtt notam varðandi AVGAS 100LL

 

22.  febrúar 2003
C-NOTAM nr. 0038/03 AVGAS 100LL

Gildir frá: 22. febrúar 2003 kl. 13:00
Gildir til: 28. febrúar 2003 kl. 13:00

Fram kom við reglubundna prófun á flugvélabensíni, AVGAS 100LL, að það uppfyllir ekki lágmarks kröfur um uppgufunarþrýsting. Við þær aðstæður geta dreifingaraðilar ekki ábyrgst gæði eldsneytisins að svo stöddu miðað við flug án sérstakra takmarkana.

Allt flug flugvéla sem nota slíkt bensín hefur því verið stöðvað þar til umráðendur loftfaranna fá staðfestingu dreifingaraðila að eldsneytið uppfylli kröfurnar. Eina eldsneytið sem staðfest er til þessa að uppfylli kröfurnar er að finna á Rifi. Sýni hafa verið tekin annars staðar á landinu og er verið að bíða niðurstaðna úr þeim mælingum. Fyrstu niðurstaðna er að vænta seinna í dag og á morgun, 22. og 23. febrúar.

NOTAM C 0035/03 frá 21. febrúar fellur hér með úr gildi.